Höskuldur: Þetta er allt of langt bil, það sjá það allir
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Mér fannst leikurinn vera í jafnvægi í hálfleik en svo var mikið högg að fá þetta 2-0 mark á sig. Þegar leikurinn var enn í jafnvægi en eftir það förum við úr strúktúr sem hafði verið að ganga vel. Þeir þefa það uppi og refsa vel,“ sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, eftir 1-4 tap gegn Víkingi á Kópavogsvelli fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 4 Víkingur R.
Breiðablik er átján stigum á eftir Víkingi nú þegar liðin hafa leikið þrettán leiki hvort. „Það er allt of langt bil, það sjá það allir. Þeir eru búnir að vera á lygilegu skriði. Ég held að það þýði lítið að hugsa það þannig. Maður þarf að taka þetta leik fyrir leik og pæla í okkur.“
Liðin mætast aftur á sunnudaginn í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.
„Nú er bara stór leikur á sunnudaginn í annari keppni. Við þurfum að læra hratt af þessum leik, taka það sem var að virka heilt yfir vel. En þetta er leikur smáatriða gegn Víkingi í þessum takti. Þú getur ekki boðið upp á það að afhenda þeim eitthvað.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.