Vill fara til Tottenham - Fær 275 þúsund pund í vikulaun

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sandro Tonali, leikmaður Newcastle United og ítalska landsliðsins, er sagður reiðubúinn að ganga í raðir Tottenham, en þetta segir Sky Sports í kvöld.

TENGT EFNI
Newcastle hafnaði Tottenham í annað sinn
Newcastle hafnaði á dögunum 75 milljóna punda tilboði Tottenham í Sandro Tonali. Lundúnaliðið bað Newcastle um að endurskoða ákvörðunina en félagið er fast á því að vilja fá í kringum 100 milljónir punda fyrir Ítalann.
Félögin eru áfram í viðræðum um miðjumanninn, sem vill fara til Tottenham.
Sky Sports segir að Tonali muni samþykkja félagaskiptin takist félögunum að ná samkomulagi um kaupverð. Hann myndi þéna um 275 þúsund pund í vikulaun hjá Lundúnafélaginu.
Tonali er ekki eini miðjumaðurinn sem Tottenham hefur augastað á í glugganum. Félagið er einnig sagt íhuga að leggja fram 85 milljóna punda tilboð í Mateus Fernandes hjá West Ham.
Alex Scott hjá Bournemouth hefur sömuleiðis verið nefndur til sögunnar en Arsenal og Manchester United eru sögð leiða baráttuna um Englendinginn.