Fotbolti.net
26.06.26 - 16:24
Elvar Geir Magnússon

Frágengið að Guðmundur Andri fer í FH

FH-ingar eiga aðeins eftir að tilkynna um skiptin.

FH-ingar eiga aðeins eftir að tilkynna um skiptin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frágengið er að sóknarmaðurinn Guðmundur Andri Tryggvason gangi í raðir FH. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net fór hann í myndatöku hjá félaginu í dag og aðeins á eftir að staðfesta skiptin.
Hann var samningsbundinn KR til ársins 2029 og því ljóst að FH þarf að greiða fyrir leikmanninn. Þór, ÍBV og Keflavík sýndu Guðmundi áhuga.

Guðmundur Andri, sem er 26 ára, hefur glímt við mikil meiðsli undanfarin misseri en hann hefur spilað þrjá leiki í Bestu deildinni á tímabilinu. Í fyrra lagði hann sitt á vogarskálarnar í lok tímabils og hjálpaði KR að halda sér í deildinni.

Guðmundur Andri fetar í fótspor föður síns Tryggva Guðmundssonar, sem gerði garðinn frægan með Fimleikafélaginu á sínum tíma.

Hann mun fá leikheimild með FH þegar glugginn opnar þann 16. júli en liðið er í neðsta sæti Bestu deildarinnar.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR15+1732
3Fram14+1230
4Breiðablik14+825
5Valur15-519
6Keflavík14-716
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór14-268
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.