HM: Paragvæ sendi Þýskaland heim eftir ótrúlega vítakeppni

Paragvæ er komið í 16-liða úrslit eftir ótrúlegan sigur á Þýskalandi

Mynd: EPA

Enciso kom Paragvæ óvænt yfir

Mynd: EPA

Havertz fagnar jöfnunarmarki sínu í síðari hálfleik

Mynd: EPA

Orlando Gill var frábær í vítakeppninni og varði meðal annars frá Havertz

Þýskaland 1 - 1 Paragvæ (3-4 eftir vítakeppni)
0-1 Julio Enciso ('42 )
1-1 Kai Havertz ('54 )
0-1 Julio Enciso ('42 )
1-1 Kai Havertz ('54 )
Paragvæ er komið í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins eftir ótrúlegan sigur á Þýskalandi í Boston í Bandaríkjunum í kvöld.
Þjóðverjar voru meira með boltann, eins og við var að búast. Julian Nagelsmann gerði tvær breytingar á liðinu og gaf Deniz Undav loks tækifæri í fremstu víglínu.
Frammistaða Þjóðverja var afar slök framan af. Þeir létu boltann ganga á milli manna án þess að skapa sér mikið og Paragvæar vörðust vel.
Það kom því nokkuð á óvart þegar Paragvæ komst yfir á 42. mínútu. Miguel Almiron lék sér á vængnum og lagði boltann út á Mataas Galarza, sem kom á hlaupinu og átti fasta sendingu fyrir markið. Þar var Julio Enciso mættur og stangaði boltann í netið.
Paragvæ var óvænt yfir í hálfleik en staðan var ekki lengi þannig. Þegar um níu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik jafnaði Kai Havertz með skalla í fjærhornið eftir fyrirgjöf Florian Wirtz.
Ákvörðun Nagelsmanns um að byrja með Undav gekk engan veginn upp og það virtist djarft að skilja Jamal Musiala eftir á bekknum. Musiala kom inn á 63. mínútu í stað Undav og var ógnandi frá fyrstu mínútu. Þá kom miðvörðurinn Waldemar Anton einnig inn á, sem varð til þess að Joshua Kimmich færði sig inn á miðjuna og Anton fór hægra megin í vörnina.
Hvorugu liðinu tókst að skora áður en venjulegum leiktíma lauk og fyrsta framlenging mótsins var staðreynd.
Þjóðverjar pressuðu á Paragvæ í framlengingunni og voru hættulegastir í föstum leikatriðum. Á endanum virtust Paragvæar hafa gefið eftir.
Nathaniel Brown tók þá hornspyrnu á fjærstöngina þar sem Jonathan Tah var dauðafrír og stangaði boltann í gagnstætt horn. Þjóðverjar fögnuðu gífurlega en gleðin var skammvinn, því dómarinn var kallaður að VAR-skjánum.
Í endursýningu sást Anton standa fyrir Orlando Gill, markverði Paragvæ. Markið var því dæmt af en ákvörðunin var afar umdeild, enda virtist Gill sækja snertinguna. Sniðugt hjá markverðinum og staðan áfram jöfn.
Báðir þjálfarar fengu gult spjald í öllum látunum sem fylgdu í kjölfarið en Þjóðverjar héldu áfram að pressa. Þeir vildu fá vítaspyrnu þegar Nick Woltemade féll í teignum og Havertz átti síðan annan skalla eftir fyrirgjöf frá Wirtz en Gill gerði vel í markinu.
Þetta var það síðasta sem gerðist í fyrri hluta framlengingarinnar. Sóknarþungi Þjóðverja hélt áfram í síðari hlutanum. Anton fékk frían skalla eftir hornspyrnu en setti boltann beint á Gill og Nadiem Amiri átti síðan aukaspyrnu sem fór í hliðarnetið.
Það þurfti því að grípa til vítaspyrnukeppni, þeirrar fyrstu á mótinu. Paragvæar höfðu náð sínu markmiði, enda líklega besti möguleiki liðsins að koma leiknum alla leið í vítakeppni. Þar vantaði hins vegar gæðin hjá Þjóðverjum.
Havertz tók fyrstu spyrnu Þjóðverja en átti afar slaka spyrnu sem Gill varði örugglega. Mauricio skoraði af öryggi úr fyrstu spyrnu Paragvæa og fagnaði af mikilli innlifun áður en Kimmich svaraði um hæl.
Skorað var úr næstu fjórum spyrnum áður en Woltemade steig á punktinn. Hann átti slaka spyrnu niðri í hægra hornið sem Gill varði frábærlega.
Dramatíkinni var þó ekki lokið því Antonio Sanabria fór á punktinn fyrir Paragvæ en spennan reyndist honum of mikil og hann setti boltann framhjá markinu.
Amiri skoraði úr fimmtu spyrnu Þjóðverja og hinn fertugi Manuel Neuer varði síðan frá Fabián Balbuena og tryggði bráðabana.
Tah var næstur á punktinn en skaut vítaspyrnu sinni himinhátt yfir markið. Varnarmaðurinn Jose Canale gat þá tryggt Paragvæ sigurinn og gerði það af öryggi.
Sögulegur sigur hjá Paragvæ, sem er komið í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins þar sem liðið mætir annað hvort Frakklandi eða Svíþjóð.
Vítakeppnin:
0-0 Gill ver frá Havertz
0-1 Mauricio
1-1 Joshua Kimmich
1-2 Gustavo Gomez
2-2 Jamal Musiala
2-3 Matias Galarza
2-3 Gill ver frá Woltemade
2-3 Sanabria skýtur framhjá
3-3 Nadiem Amiri
3-3 Neuer ver frá Balbuena
3-3 Tah skýtur hátt yfir
3-4 Jose Canale