Stuðningsmenn Vals tjá sig um brottreksturinn - „Hefur engan veginn raungerst“

Hermann tók við liðinu fyrir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur er í 5. sæti með 19 stig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Skúli Jónsson ásamt Benedikt Bóas Hinrikssyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brazell stýrir liðinu út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Már og Jóhann Skúli.

Mynd: Kári Snorrason

Unnu 4-2 sigur á Þór í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Arnar Sveinn Geirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tekur við eftir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort Brazell muni aðstoða Dóra á næsta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hermann tók við liðinu fyrir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Chris Brazell mun stýra liðinu út tímabilið og þá mun Halldór Árnason taka við liðinu að tímabilinu loknu.
Fótbolti.net ræddi við þrjá stuðningsmenn Vals og lagði fyrir þá eftirfarandi fjórar spurningar:
A) Er það rétt ákvörðun að láta Hemma fara á þessum tímapunkti?
B) Brazell stýrir liðinu út tímabilið, hvernig líst þér á það?
C) Hvernig finnst þér vegferðin sem Valur er á?
D) Er Halldór Árnason rétti maðurinn til að taka við til frambúðar?

Hemmi rekinn frá Val (Staðfest) - Dóri Árna tekur við eftir tímabilið
A) Sennilega. Tímabilið farið illa af stað, bæði úrslitalega og ekki síst frammistöðulega. Ég hef séð lítil merki á liðinu um að eitthvað sé að fara að breytast. Hjá félagi eins og Val er ekki hægt að tapa leikjum sannfærandi án þess að það sé "stutt í kúkinn" eins og Óli Jó myndi segja.
B) Ég hef eiginlega enga skoðun á því. Ef við fáum þá leikmenn sem eru utan hópsins aftur inn helst í gær þá getum við keyrt á evrópusætið en ég er ekkert sérstaklega vongóður.
C) Sá leikur sem hefur verið talaður um framtíð félagsins og stefnu finnst mér nauðsynlegur, áhugaverður og spennandi. Það sem hefur hins vegar vantað, horfandi á þetta utanfrá, er að hætta að tala og fara að gera. Ráðningin á Hemma reyndist ekki góð eins og margir höfðu óttast en með nýjum þjálfara hef ég trú á að leikmönnum finnist heillandi að koma í Val.
D) Ekki spurning. Valur þarf einhvern þarna sem er með "púll", hefur gert þetta áður og fyrst og síðast einhvern sem er vakinn og sofinn yfir íslenskum fótbolta. Hvorki Hemmi né Túfa virðast hafa haft þann faktor að leikmenn hafi viljað koma í Val, sem ég held að líti öðruvísi út með Dóra sem þjálfara. Ég held að hann sé hárrétt ráðning á þessum tímapunkti og ég er virkilega ánægður með að fá hann inn, þó svo að hann sé fárveikur Chelsea maður og uppalinn í Vesturbænum. Vesturbæingum líður oftast vel á Hlíðarenda og eru nothæfir til ýmissa verka, það hefur marg sýnt sig.
Jóhann Már Helgason, Dr. Football
A) Rétt og ekki rétt. Liðið hefur verið undir væntingum í allt sumar. Spilmennskan hefur verið dauf og það hefur vantað bæði karakter og skýra hugmyndafræði. Þegar Hemmi tók við lofaði hann því að liðið myndi fá ákveðin einkenni, meðal annars að andstæðingar myndu hata að spila á móti Val. Að mínu mati hefur það engan veginn raungerst og liðið hefur einfaldlega verið of flatt. Að því leyti skil ég vel ákvörðun stjórnar um að gera breytingu.
B) Ég er þó ekki sérstaklega spenntur fyrir þeirri lausn sem var valin. Fyrir mér er þetta jafn mikið lið Brazzell og Hemma. Það hefur lengi verið rætt um tengsl þeirra og hver hafi í raun haft mest áhrif á fótboltalegar ákvarðanir innan teymisins. Þess vegna finnst mér sérstakt að fela Brazzell að leiða liðið áfram, jafnvel þótt ég skilji ákvörðunina um að láta Hemma fara.
C) Vegferð Vals snýst hins vegar um miklu meira en meistaraflokkinn. Félagið stendur ekki jafn sterkt fjárhagslega og það gerði fyrir tveimur til þremur árum og núverandi stjórn þarf að leggja aukna áherslu á sjálfbærni. Fyrir mér er því alltof snemmt að fella endanlegan dóm um núverandi stefnu og strategíu. Slík vinna tekur tíma og verður að fá tækifæri til að skila sér.
D) Ég hef mikla trú á Dóra og hann hefði verið mitt persónulega val. Eini gallinn er að ég hefði viljað sjá hann taka við strax. Ég held að Dóri muni koma með skýran strúktúr, sterka hugmyndafræði og skýr fótboltaleg gildi inn í liðið. Það verður mjög spennandi að fylgjast með þeirri vegferð þegar hann tekur við.
Arnar Sveinn Geirsson, fyrrum leikmaður Vals
A) Það er aldrei gaman að þurfa að láta gott fólk fara, en þegar allt er tekið saman að þá held ég að þessi ákvörðun sé rétt. Liðið hefur auðvitað verið að díla við mikil meiðsli og fjarveru lykilmanna sem auðvitað hefur áhrif á spilamennsku liðsins. Það sem ég hef samt sem áður saknað að sjá er að það sé verið að vinna í einhverja átt, að maður átti sig á því hvað er verið að gera. Tilfinningin er sú að liðið sé búið að taka litlum framförum og við erum ekki að ná því besta út úr þeim leikmönnum sem við erum með. Þess vegna held ég, út frá því sem ég hef séð, að þessi ákvörðun sé rétt.
B) Mér líst bara ágætlega á það - og held það sé betri ákvörðun en að Halldór kæmi strax inn. Það þýðir að það verður ekki allt of mikið rót á þessu og hópurinn og Brazell geta fókusað á að klára þetta tímabil eins vel og hægt er. Halldór þarf þá ekki að koma inn á miðju tímabili með þá pressu sem fylgir því - og getur í staðinn undirbúið sig fyrir það að koma inn í haust með sínar áherslur og heilt undirbúningstímabil fyrir framan sig.
C) Á blaði er ég ánægður með stefnuna sem Valur er með. Það er hins vegar eitt að skrifa upp stefnu og svo framfylgja henni - og hingað til hefur mér fundist framkvæmdin á stefnunni ekki nægilega góð. Ég held að þessi ákvörðun sýni að stjórn er sammála því - og frekar en að breyta stefnunni að þá taka þeir ákvörðun um að framkvæma stefnuna betur. Það er jákvætt - og með þessum breytingum kemur vonandi einhver stöðugleiki sem leikmenn og félagið allt geta nýtt til þess að koma Val aftur á þann stað sem það á að vera á.
D) Mér líst mjög vel á Halldór og finnst hann passa mun betur inn í hugmyndafræðina sem ný stjórn Vals kynnti fyrir tæpum tveimur árum. Nú þarf bara að gefa honum andrými til þess að koma sínum áherslum inn í liðið og félagið. Ég held að það sé alveg ljóst að það er ekki geta leikmanna sem kemur í veg fyrir árangur, heldur er það mikið frekar kúltúrinn sem þarf að taka til í og breyta til hins betra. Ef Halldóri tekst að gera það á næstu tveimur árum að þá hef ég engar áhyggjur af Val til framtíðar.

Valur er í 5. sæti með 19 stig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Skúli Jónsson ásamt Benedikt Bóas Hinrikssyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brazell stýrir liðinu út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Már og Jóhann Skúli.

Mynd: Kári Snorrason

Unnu 4-2 sigur á Þór í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Arnar Sveinn Geirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tekur við eftir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort Brazell muni aðstoða Dóra á næsta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




