Fotbolti.net
29.07.06 - 15:48
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Pablo Aimar til Real Zaragoza (Staðfest)

Aimar hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Valencia

Aimar hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Valencia

Canon

Mynd: Getty Images

Real Zaragoza hafa gengið frá kaupunum á hinum hæfileikaríka Pablo Aimar frá Valencia fyrir 7,5 milljónir punda þar sem hann vonast til að finna sitt gamla form en á góðum degi eru fáir betri en hann.
Þessi snjalli miðjumaður skrifaðir undir fjögurra ára samning við Zaragoza og munn hann fá um eina milljón punda í eigin vasa á ári.

Aimar, sem er 26 ára gamall, hefur spilað 41 landsleik fyrir Argentínu og skorað í þeim sjö mörk en fékk fá tækifæri á Heimsmeistaramótinu í sumar þar sem þeir duttu út í fjórðungsúrslitum gegn Þýskalandi.

Hann hefur átt við erfið meiðsli að stríða undanfarin tímabil og hafði dottið úr liðinu hjá Valencia þar sem hann vann tvo deildartitla undir stjórn Rafa Benitez.

Vissir þú að:
Pablo Aimar er kallaður 'El Payaso' eða 'Trúðurinn'
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.