Davíð Smári: Með pizzu í hálfleik og engar áhyggjur af teyminu

Davíð Smári var í stúkunni meðan Halldór Geir Heiðarsson, Donni, (vinstra megin) stýrði liðinu í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eiður Aron átti frábæran leik.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Davíð Smári var í stúkunni meðan Halldór Geir Heiðarsson, Donni, (vinstra megin) stýrði liðinu í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Njarðvík sótti þrjú stig í Þorlákshöfn með 1-0 sigri á Ægi í 16. umferð Lengjudeildarinnar. Davíð Smári þjálfari Njarðvíkur fékk að líta rautt spjald í síðasta leik Njarðvíkur og var mættur í stúkuna og til taks í viðtal eftir leikinn.
Það var ekki annað hægt en að spyrja hvernig honum hafi fundist tilfinningin að vera í stúkunni og sjá sitt lið vinna?
„Tilfinningin var bara geggjuð, fékk mér pizzu í hálfleik og já auðvitað erfitt skiluru, en ég er með frábært teymi og Donni (Halldór Geir aðstoðarþjálfari) stóð sig frábærlega og þeir sem hjálpuðu honum."
„Ég hafði engar áhyggjur af þeim, hinsvegar hafði ég áhyggjur af færanýtingunni okkar í fyrri hálfleik. Fannst við fara illa með færin okkar, frábærir spilkaflar, bara virkilega góðir í fyrri hálfleik. Eins og mér fannst við góðir í fyrri þá fannst mér við akkúrat í hina áttina í seinni, jafn lélegir í seinni hálfleik. Ekta leikur þar sem mér leið að um leið og við myndum droppa orkustiginu gæti okkur verið refsa."
Á degi þar sem vantaði tvo öfluga sóknarmenn í lið Njarðvíkur (Oumar Diouck og Braga Karl) reyndist dýrmætt að eiga sterkan og góðan varnarleik og að halda hreinu. „Eiður Aron auðvitað í sérflokki í dag og með gríðarlega sterka menn í kringum sig. Góð frammistaða frá liðinu heilt yfir. Hinsvegar fannst mér við droppa aðeins í orku í seinni sem er kannski eðlilegt, náttúrulega mjög stutt síðan við áttum mjög erfiðan leik við HK"
Fyrir þennan útileik gegn Ægi hafði Njarðvík tapað síðustu þremur útileikjum sínum en á móti verið duglegir að sækja sigra á heimavelli sínum. „Já, þú veist við þurfum bara að vera að bæta okkur og mér finnst við vera búnir að því frá fyrsta degi, það er vinnan mín að reyna bæta liðið. Við erum að ná að koma miklu meiri orku inn í liðið og meira hjarta. Ég er gríðarlega ánægður með það."
Framundan hjá Njarðvík er heimaleikur gegn Vestra en Davíð Smári þekkir heldur betur vel til Vestra liðsins. „Ekkert öðruvísi þó það sé Vestri eða hvað annað lið, við viljum bara halda áfram að vera sterkir á heimavelli og við þurfum að sýna algjöra topp frammistöðu til þess að á móti jafn góðu liði og Vestri er."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Eiður Aron átti frábæran leik.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
