Fotbolti.net
28.07.26 - 22:04
Ívan Guðjón Baldursson

Systkinin skoruðu bæði - Zwolle setti fimm

Systkinin skoruðu bæði - Zwolle setti fimm
Canon

Mynd: HB Köge

Kvennaboltinn
Það komu einhverjar íslenskar atvinnukonur við sögu í leikjum dagsins og skoraði Emelía Óskarsdóttir í Íslendingaslag.
Emelía var byrjunarliði HB Köge og gerði annað mark leiksins í sigri gegn Sunnevu Hrönn Sigurvinsdóttur og stöllum í FCK. Hún skoraði þar gegn sínum gömlu liðsfélögum eftir að hafa leikið fyrir FCK á lánssamningi á síðustu leiktíð.

Emelía er yngri systir Orra Steins Óskarssonar sem skoraði líka í kvöld, í sigri gegn Aston Villa. Systkinin skoruðu því bæði.

Hin írska Kyra Carusa var allt í öllu í sigri Köge. Hún lagði upp markið fyrir Emelíu og skoraði hin tvö sjálf í 0-3 sigri. Emelía lék aðeins fyrri hálfleikinn í kvöld.

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir og stöllur í liði PEC Zwolle rúlluðu þá yfir Genk á meðan Freiburg skoraði sjö mörk gegn FC Zürich. Ingibjörg Sigurðardóttir er á mála hjá Freiburg.

FCK 0 - 3 HB Köge
0-1 Kyra Carusa ('17)
0-2 Emelía Óskarsdóttir ('37)
0-3 Kyra Carusa ('76)

Genk 0 - 5 PEC Zwolle

Zurich 0 - 7 Freiburg
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.