Fotbolti.net
29.08.06 - 20:56
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Maniche til Atletico Madrid (Staðfest)

Maniche er kominn til Spánar

Maniche er kominn til Spánar

Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid hefur gengið frá kaupunum á portúgalska landsliðsmanninum Maniche frá Dynamo Moscow og skrifaði hann undir þriggja ára samning við félagið.
Maniche, sem spilaði stórt hlutverk með Portúgal á HM í sumar þegar þeir komust alla leið í undanúrslitin, var á láni hjá Chelsea á síðasta tímabili en hefur annars ekki verið áberandi í evrópska boltanum síðan hann vann Meistaradeildina með Porto árið 2004.

Talið er að Dynamo vildu tólf milljónir evra fyrir leikmanninn og voru franska félagið Monaco einnig á eftir þessum sterka miðjumanni. Atletico vonast svo til að bæta við Jose Antonio Reyes, leikmanni Arsenal, fyrir föstudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.