29.08.06 - 22:59
Hafliði Breiðfjörð
Juanfran til Osasuna (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Spánverjinn Juanfran gekk í dag í raðir Osasuna frá Real Madrid en leikmaðurinn sem á sæti í U21 árs landsliði Spánverja gerði fjögurra ára samning við Osasuna eftir að hafa verið leystur undan samningi við Real Madrid.
Osasuna sögðu á vefsíðu sinni í kvöld að Real muni hinsvegar eiga möguleika á að fá miðvallarleikmanninn til baka fyrstu tvö ár samningsins ef þeir vilja fá hann í aðalliðið sitt.
Juanfran var á láni hjá Espanyol á síðustu leiktíð og átti þátt í að liðið komst í úrslitaleik Konungsbikarsins en hann var á bekknum í úrslitaleiknum þar sem þeir unnu Real Zaragoza.
Juanfran mun hitta fyrir Roberto Soldado fyrrum varaliðsmann Real Madrid hjá Osasuna en liðið mun leika í UEFA Cup á leiktíðinnni sem er að hefjast eftir að hafa tapað fyrir Hamburg í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.