29.08.07 - 10:31
Þórður Már Sigfússon
Hörður Sveinsson til Tromsö á láni (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Víðir Pálmason


Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Víðir Pálmason
Framherjinn, Hörður Sveinsson, hefur gengið til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Tromsö á láni frá Silkeborg í Danmörku en þetta kemur fram á opinberri vefsíðu norska félagsins.
Lánssamningurinn er til þriggja mánaða og hafa félögin einnig komist að samkomulagi um kaupverð á leikmanninum fari svo að Tromsö ákveði að kaupa hann að loknum lánssamningstímanum.
Tromsö er sem stendur í áttunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
Tromsö er sem stendur í áttunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
Heimild: Opinber vefsíða Tromsö
