Fotbolti.net
29.08.07 - 16:10
Sindri Þór Þorgeirsson

Ian Harte til Sunderland (Staðfest)

Ian Harte til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Írski vinstri bakvörðurinn Ian Harte er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Sunderland og mun hann þar hitta fyrir Roy Keane en þeir eru gamlir félagar í írska landsliðinu. Gengið var frá kaupunum í dag og Harte skrifaði undir eins árs samning.
Harte var fyrr í sumar leystur undan samningi hjá spænska liðinu Levante hefur síðan þá verið að leita sér að nýju félagi. Hann er ekki ókunnugur í ensku úrvalsdeildinni því hann lék áður með Leeds United og komst meðal annars í undanúrslit meistaradeildarinnar með þeim þar sem hann var lykilmaður.

Hann hefur leikið 64 landsleiki fyrir írska landsliðið og skorað í þeim 11 mörk en Harte hefur undanfarin ár verið þekktur fyrir aukaspyrnur sínar sem rata oftar en ekki í marknetið.

Heimild: Heimasíða Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.