29.08.07 - 22:12
Magnús Már Einarsson
Sandefjord fær Guðmund Pétursson á láni frá KR (Staðfest)

Guðmundur í leik gegn Breiðablik fyrr í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandefjord úr norsku úrvalsdeildinni hefur fengið framherjann Guðmund Pétursson að láni frá KR út tímabilið í Noregi en því lýkur fjórða nóvember.
,,Ég hefði alveg verið til í að vera með KR út tímabilið en maður getur ekki hafnað svona tækifæri," sagði Guðmundur við Fótbolta.net í kvöld en hann heldur utan aðfararnótt föstudags og mun því ná að leika með KR gegn FH í Landsbankadeildinni annað kvöld.
,,Þetta verður spennandi og gott tækifæri fyrir mig til að sanna mig," sagði Guðmundur en að sögn hans hefur Sandefjord möguleika á að framlengja lánssamninginn eða kaupa hann eftir tímabilið í haust.
Sandefjord er í neðsta sæti í norsku deildinni með fimmtán stig eftir átján leiki en Odd Grenland er með jafnmörg stig og Start sem er í tólfta sæti er með sextán stig þannig að keppnin er jöfn og hörð.
Sandefjord mætir toppliði Brann á sunnudaginn og Guðmundur gæti verið í leikmannahópnum þá en hann mun fá leikheimild áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti á föstudag.
Guðmundur sem er tvítugur gekk til liðs við KR í lok júlí í fyrra en hann hafði leikið með uppeldisfélagi sínu ÍR fram að því.
Guðmundur hefur skorað þrjú mörk fyrir KR-inga í deild og bikar í átta leikjum síðan hann kom til félagsins fyrir ári og þá skoraði hann gegn Hacken í Evrópukeppni Félagsliða fyrr í sumar. Guðmundur skoraði einnig í síðasta leik KR, gegn ÍA síðastliðið sunnudagskvöld en hann jafnaði 1-1 undir lok leiksins.