Fotbolti.net
29.08.26 - 09:11
Ívan Guðjón Baldursson

Mohamed-Ali til Hull City (Staðfest)

Mohamed-Ali til Hull City (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Úrvalsdeildarnýliðar Hull City eru búnir að festa kaup á nýjum sóknarleikmanni sem kemur úr röðum OGC Nice.
Hull fær tvo nýja leikmenn (Staðfest) - Borga aftur metfé
TENGT EFNI

Hull fær tvo nýja leikmenn (Staðfest) - Borga aftur metfé

Hull borgar tæpar 15 milljónir punda til að ganga frá kaupum á Mohamed-Ali Cho, sem gerir fimm ára samning.

Cho er 22 ára og leikur sem hægri kantmaður að upplagi en getur einnig spilað á vinstri kanti og sem fremsti sóknarmaður.

Cho lék tvo landsleiki fyrir U16 landslið Englands áður en hann skipti yfir í franska landsliðið, þar sem hann á 3 mörk í 17 leikjum. Þar af spilaði Cho 8 leiki fyrir U21 landsliðið.

Nýliðar Hull hafa verið í stórsókn á leikmannamarkaðinum í sumar og er Cho þrettándi leikmaðurinn sem kemur til félagsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.