29.09.06 - 14:15
Magnús Már Einarsson
Elmar Dan aftur til KA (Staðfest)

Elmar Dan skrifar undir samninginn nú rétt í þessu ásamt Tómasi Lárusi Vilbergssyni og Gunnari Gunnarssyni.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Fannar

Elmar Dan skrifar undir samninginn nú rétt í þessu ásamt Tómasi Lárusi Vilbergssyni og Gunnari Gunnarssyni.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Fannar
Sóknarmaðurinn Elmar Dan Sigþórsson er genginn aftur til liðs við KA og hefur gert tveggja ára samning við félagið en hann lék síðast með því árið 2004 þegar hann skoraði eitt mark í fjórtán leikjum í Landsbankadeildinni.
Elmar Dan gekk til liðs við Víking og skoraði fjögur mörk í níu leikjum í fyrstu deildinni í fyrra áður en hann varð fyrir því óláni að slíta krossbönd.
Í sumar fór þessi 24 ára gamli leikmaður á uppeldisslóðirnar og lék með Fjarðabyggð. Hann skoraði sjö mörk í átján leikjum þegar að liðið sigraði aðra deildina í sumar en nú er hann kominn til KA þar sem hann hefur leikið mestan hluta meistaraflokksferilsins.