Fotbolti.net
29.09.06 - 19:49
Hafliði Breiðfjörð

Hjálmar Þórarinsson lánaður til Raith Rovers (Staðfest)

Hjálmar er hér vinstra megin á myndinni á æfingu með U21 árs landsliði Íslands. Ásamt honum á myndinni er Theodór Elmar Bjarnason leikmaður Celtic.

Hjálmar er hér vinstra megin á myndinni á æfingu með U21 árs landsliði Íslands. Ásamt honum á myndinni er Theodór Elmar Bjarnason leikmaður Celtic.

Canon

Mynd: Guðmundur Karl

Framherjinn ungi Hjálmar Þórarinsson hjá Hearts í Skotlandi hefur verið lánaður frá félaginu til Raith Rovers sem einnig er í Skotlandi og leikur í þriðju deildinni þar í landi. Hjálmar sem er tvítugur hefur leikið sex leiki með aðalliði Hearts síðan hann kom til félagsins 15. mars 2005.
Þar af var aðeins einn leikur á síðustu leiktíð en hann hefur ekki verið í leikmannahópnujm á þessari leiktíð. Hann skoraði þó í sínum fyrsta leik fyrir félagið í undanúrslitum bikarsins árið 2005 en það var hans eina mark fyrr Hearts.

Hjálmar sem er uppalinn hjá Þrótti fer því nú til Raith Rovers þar sem hann verður í láni fram í janúar en hann var annar kostur hjá félaginu, þeir leituðu til hans eftir að Jason Dair hafnaði þeim og fór til East Fife.

Hjálmar verður í leikmannahópi Raith Rovers sem mætir Ayr United á morgun.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.