Hemmi Hreiðars: Ég reikna ekki með að vera áfram
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkiskvenna, var að mestu leyti sáttur við spilamennsku sinna kvenna í dag.
\"Við ætluðum að prófa eitthvað nýtt í byrjun en vorum fljót að sjá að það gekk ekki alveg. En svo voru þær náttúrulega sterkari, ég ætla nú bara að segja það og þær voru betri aðilinn í leiknum. En ég verð að hrósa mínu liði, við vorum inni í leiknum og bara hörku barátta.\"

Hermann tók við liðinu í byrjun júlí eftir dapurt gegni framan af sumri og hefur liðið bætt spilamennsku sína talsvert síðan. Hann gerði upp sumarið í viðtalinu.
\"Fyrst og fremst þá vildi maður koma trú í liðið og fá gleði því leikmenn verða að njóta þess að vera í fótbolta. Það hefur að mínu mati endurspeglast í leik liðsins.\"
\"Við höfum verið inni í öllum leikjum en stigastöfnun kannski ekki í samræmi við það.\"
Hermann sagðist ekki reikna með því að þjálfa liðið áfram.
\"Þetta var alltaf bara tímabundið, að hoppa inn í þetta. Eins og ég hef sagt áður þá var engin sérstök biðröð eftir þessu en maður hefur taugar til liðsins og langaði að leggja sitt af mörkum.\"
Hann reiknar þó með því að liðið haldi flestum sínum leikmönnum þrátt fyrir að leika í fyrstu deild á næsta tímabili.
\"Ég held að hópurinn verði svona nokkuð svipaður, ég veit ekki betur en það.\"
Viðtalið má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.