Gyrðir og Aron með einkennin sem hafa vantað - „Alls ekki síðustu tvö púslin“

„Þetta eru alls ekki síðustu tvö púslin í liðið fyrir framhaldið.“

Mynd: Samsett/Þór

Atanga meiddist illa snemma móts.

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Haugland yfirgaf Þórsara óvænt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Býst við tveimur til þremur leikmönnum í viðbót.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í neðsta sæti deildarinnar.

Þórsarar tilkynntu fyrr í dag um komu þeirra Arons Einars Gunnarssonar og Gyrðis Hrafns Guðbrandssonar.
Aron kemur á frjálsri sölu frá Al Gharafa og skrifar undir samning út tímabilið en Gyrðir kemur á láni frá KR út tímabilið.
Þór er í erfiðum málum í Bestu deildinni, í neðsta sæti með aðeins átta stig. Liðið hefur ekki fagnað sigri síðan í þriðju umferð.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari liðsins, ræddi við Fótbolta.net um komu þessara tveggja leikmanna.

TENGT EFNI
Aron og Gylfi geta mæst á morgun - „Rætt það sín á milli hvernig þeir ætla að taka hvor á öðrum“
„Ég þekki Gyrði vel. Hann var leikmaður hjá mér í Leikni. Hann er öskufljótur, sterkur, með mikla útgeislun og mikill karakter. Alvöru íþróttamaður sem smitar jákvæða orku út frá sér. Ég er gríðarlega spenntur að sjá hvernig hann kemur inn í þetta hjá okkur. Hann er akkúrat með þau einkenni sem okkur hefur vantað - mikil jákvæð orka, talandi og getur leyst nokkrar stöður.“
„Maður fylgist alltaf með leikmönnum sem maður hefur þjálfað og veit alltaf af þeim. Hann hefur verið margoft í umræðunni hjá okkur.“
Aðspurður um hvað Aron komi með inn í liðið stóð Sigurður ekki á svörum. „Hann kemur með karakter, reynslu og leiðtogahæfni. Eitthvað sem hefur svolítið vantað í liðið í sumar. Hann kemur og getur stjórnað svolítið. Óhræddur við að taka ákvarðanir í leikjum,“ en Sigurður ræðir nánar um Aron í viðtali sem var birt fyrr í dag.
Býst við tveimur til þremur leikmönnum í viðbót
Býstu við frekari styrkingum í glugganum?
„Já, ég býst við að við sækjum tvo til þrjá leikmenn í viðbót. Þetta eru alls ekki síðustu tvö púslin í liðið fyrir framhaldið,“ segir Sigurður.
Sigurður segir áherslu lagða á að sækja sóknarmann eftir að kantmaðurinn Isaac Atanga meiddist alvarlega og framherjinn Sebastian Haugland yfirgaf félagið óvænt.
„Já við þurfum einhverja leikmenn fram á við. Ég býst við tveimur til þremur leikmönnum og við höfum misst út framherja og kantmann. Við erum búnir að vera óheppnir með þær stöður og leitumst sérstaklega eftir leikmönnum til að fylla í þau skörð.“
Er eitthvað langt komið í þeim efnum?
„Við höfum farið langt í mörgum viðræðum sem hafa dottið upp fyrir. Við erum í viðræðum við nokkra og erum að skoða. Ekkert sem er fast í hendi og ekkert sem við erum tilbúnir að halda að sé klárt,“ segir Sigurður að lokum.