29.09.26 - 20:43
Kári Snorrason
Einkunnir Íslands - Léttleikandi lúxus
Kári Snorrason skrifar frá Lúxemborg:

Öðru marki Íslands fagnað.

Mynd: KSÍ

Orri var valinn maður leiksins.

Mynd: KSÍ

Andri og Orri náðu frábærlega saman.

Mynd: KSÍ

Öðru marki Íslands fagnað.

Mynd: KSÍ

Ísland vann 3-0 sigur á Lúxemborg í C-deild Þjóðadeildarinnar fyrr í kvöld. Með sigrinum tyllti Ísland sér á topp riðilsins og er liðið með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina.
Um er að ræða fyrsta sigurleik Íslands í rúma tíu mánuði en liðið hafði ekki unnið í síðustu sjö leikjum sínum fyrir leik kvöldsins.
Hér fyrir neðan má sjá einkunnagjöf Fótbolta.net úr leiknum.

Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 3 Ísland
Hákon Rafn Valdimarsson - 7
Þurfti ekki að hafa mikið fyrir hlutunum í dag en þegar á hann reyndi var Hákon með allt í teskeið.
Logi Tómasson - 7
Kom virkilega flottur inn í vinstri bakvörðinn, bæði sóknar- og varnarlega.
Daníel Leó Grétarsson - 7
Lokaði vel á framherja Lúxemborgar. Var í engri yfirvinnu en gerði vel þegar liðið þurfti á honum að halda. Færði sig hægra megin í vörnina eftir meiðsli Stefáns og leysti það með stakri prýði.
Stefán Teitur Þórðarson - 7
Skilaði inn góðri vakt í miðverðinum. Neyddist til að fara af velli um miðbik síðari hálfleiks, vonandi eru það ekki alvarleg meiðsli.
Guðlaugur Victor Pálsson - 8
Virkilega traustur og kórónaði góða frammistöðu með glæsilegu skallamarki þar sem hann innsiglaði sigurinn.
Hákon Arnar Haraldsson - 8
Var mikið í boltanum og með mikla yfirferð. Sívinnandi og erfiður við að eiga í pressunni.
Ísak Bergmann Jóhannesson - 7
Byrjaði brösulega en vann sig vel inn í leikinn. Algjört hlaupadýr á miðjunni og gerði vel varnarlega.
Gylfi Þór Sigurðsson - 8
Sýndi að gæði eru varanleg, algjör kjölfesta á miðjunni. Fyrirgjafirnar úr föstum leikatriðum upp á tíu og náði að leysa vel úr pressu Lúxemborgar. Tók 90 mínútur í þokkabót.
Mikael Egill Ellertsson - 7
Sprækur á hægri kantinum. Með mikla sprengju og ógnaði vel inn fyrir vörn heimamanna.
Orri Steinn Óskarsson - 9, maður leiksins
Fyrirliðinn stórkostlegur. Á stóran þátt í fyrra markinu og gerði frábærlega í eigin marki. Samvinna hans og Andra upp á tíu. Erfitt að gera upp á milli þeirra í vali á manni leiksins.
Andri Lucas Guðjohnsen - 9
Kláraði færið af svo mikilli ró í fyrra marki Íslands og átti svo stjörnubilaða stoðsendingu á Orra. Búinn að skora í báðum leikjum í verkefninu, frábært fyrir liðið að hafa hann heitann.
Varamenn:
Hörður Björgvin Magnússon - 6
Aðrir spiluðu ekki nóg til að fá einkunn