Fotbolti.net
29.10.05 - 11:14
Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Helgason í Grindavík (Staðfest)

Jóhann Helgason í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: ka-sport.is/fot

Jóhann Helgason sem hefur leikið með KA á Akureyri undanfarin ár hefur skrifað undir þriggja ára samning við Grindavík. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem knattspyrnustjórinn Sigurður Jónsson fær í raðir Grindavíkur síðan hann var ráðinn til félagsins fyrir rúmri viku síðan.
Jóhann er 21 árs gamall og hefur spilað 43 leiki með KA. Hann á einnig að baki 5 leiki með U-19 ára landsliðinu og 1 með U-21.

Hann fékk atkvæði í lið ársins í 1. deildinni í sumar sem var valið af þjálfurum og fyrirliðum liðanna í delidinni fyrir Fótbolta.net en var þó ekki í liði ársins.

Jóhann hefur leikið sem framherji eða kantmaður hjá KA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.