29.10.05 - 11:18
Hafliði Breiðfjörð
Arilíus Marteinsson til ÍBV (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
ÍBV er byrjað að styrkja sig fyrir átökin í Landsbankadeildinni næsta sumar en í dag skrifaði fyrsti leikmaðurinn undir samning við félagið frá því leiktíðinni lauk. Það er Arilíus Marteinsson leikmaður sem kemur frá Selfossi sem skrifaði undir þriggja ára samning við Eyjamenn.
Arelíus á að baki 80 deildarleiki með Selfossi og hefur skorað í þeim 30 mörk. Hann hefur einnig leikið með U-17 og U-19 landsliði Íslands.
Á vefsíðu ÍBV kemur einnig fram að félagið á í viðræður við fleiri leikmenn og munu birtast frekari fréttir af því er eitthvað gerist. Liðið mun svo hefja æfingar í lok næstu vikur en Guðlaugur Baldursson mun stjórna liðinu annað árið í röð.