29.10.06 - 20:58
Hafliði Breiðfjörð
Halldór Hilmisson í Fylki (Staðfest)

Halldór Hilmisson leikur með Fylki á næstu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr

Halldór Hilmisson er genginn í raðir Fylkismanna og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Hann er fjórði leikmaðurinn sem Fylkir fær til sín síðan Landsbankadeildinni lauk og enn fleiri gætu komið á næstunni.
Halldór Hilmisson kemur frá Þrótturum þar sem hann hefur leikið undanfarin ár.
Hann sagði upp samningi sínum við Þróttara fyrir rúmri viku síðan og ákvað að leita sér að liði sem leikur í Landsbankadeildinni. Þeirri leit er nú lokið með félagaskiptum hans til Fylkis.
Hann skoraði fimm mörk í sautján leikjum fyrir Þróttara í fyrstu deild í sumar og var markahæstur Þróttara en hann hefur einnig leikið með Val, Fram og FH.
Hann á að baki 63 leiki í efstu deild hér á landi og hefur skorað í þeim fjögur mörk. Halldór er 29 ára gamall miðvalarleikmaður og lék á sínum tíma með U19 og U17 ára landsliðum Íslands.
Sem fyrr sagði er hann fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Fylksimanna síðan tímabilinu lauk, áður voru komnir þeir David Hannah og Kristján Valdimarsson frá Grindavík og Freyr Guðlaugsson frá Þór á Akureyri.
Einn leikmaður er þegar hættur hjá þeim frá í sumar, Björn Viðar Ásbjörnsson sem fór í Víking.
Fylkismenn eru ekki hættir að styrkja leikmannahóp sinn og á næstunni má búast við enn frekari af tíðindum úr Árbænum.