29.10.07 - 16:46
Magnús Már Einarsson
Jónas Hallgrímsson ráðinn þjálfari Völsungs (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hilmar V. Gunnarsson

Jónas Hallgrímsson hefur verið ráðinn þjálfari 2.deildarliðs Völsungs frá Húsavík en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.
Jónas sem er 46 ára tekur við starfinu af Róberti Ragnari Skarphéðinssyni sem hefur þjálfað Völsung undanfarin tvö ár.
,,Knattspyrnuráð Völsungs hefur gengið frá ráðningu Jónasar Hallgrímssonar sem þjálfara mfl. karla fyrir komandi keppnistímabil. Um leið og við bjóðum hann velkominn til starfa þökkum við Róberti Ragnari Skarphéðinssyni og Unnari Garðarssyni fyrir störf sín í þágu félagsins," segir á heimasíðu Völsungs.
Jónas þjálfaði Völsung frá 2000-2002 og hann lék einnig með liðinu til margra ára, síðast 2002 þegar hann lék 16 leiki í annarri deildinni, þá 41 árs gamall.
Hann hefur einnig leikið nokkra leiki með Snerti í þriðju deildinni undanfarin ár, síðast í sumar þar sem hann lék einn leik.

Heimild: Heimasíða Völsungs