Fotbolti.net
28.10.26 - 20:50
Brynjar Ingi Erluson

Kompany kominn heim og orsök veikindanna fundin

Vincent Kompany

Vincent Kompany

Canon

Mynd: EPA

Belgíski þjálfarinn Vincent Kompany hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi, en þetta staðfesti Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern München, í kvöld.
Kompany var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa hnigið niður á æfingasvæði Bæjara í síðustu viku.

Hann hefur verið undir miklu álagi að undanförnu og glímt við svefnleysi. Álagið hefur tekið sinn toll á Kompany, sem veiktist af veirusýkingu og þurfti að taka sér nokkurra daga hlé frá störfum. Hann sneri þó aftur á hliðarlínuna gegn Arsenal í Meistaradeildinni í miðri viku, en nokkrum dögum síðar hneig hann niður á æfingasvæðinu.

Belginn hefur nú verið útskrifaður af sjúkrahúsi en mun taka því rólega næstu daga og vikur á meðan hann jafnar sig.

Nú hefur einnig komið í ljós hvað olli því að hann hneig niður, en Kompany greindist með heilahimnubólgu. Samkvæmt Eberl gæti það að orsökin sé fundin flýtt fyrir því að hann geti snúið aftur til starfa.

„Þeir komust að því hvað var að honum. Það var heilahimnubólga sem varð til þess að hann hneig niður á föstudaginn. Hann hefur fengið að fara heim og getur haldið bataferlinu áfram þar. Það felur í sér hvíld og lyfjameðferð og ég er sannfærður um að hann muni ná sér að fullu og snúa aftur á hliðarlínuna áður en langt um líður.“

„Hann mun þó fá allan þann tíma sem hann þarf, eins og við höfum alltaf sagt. Þess vegna höfum við frá upphafi talað um að hann verði frá í nokkrar vikur,“
sagði Eberl.
Kompany kominn heim og orsök veikindanna fundin
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.