28.10.26 - 20:12
Brynjar Ingi Erluson
Langþráð mark hjá Daníel Tristani

Daníel Tristan skoraði fyrsta deildarmark sitt á tímabilinu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu þegar Malmö vann 3-0 sigur á Halmstad í 26. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Framherjinn hafði þurft að bíða lengi eftir fyrsta deildarmarkinu, en þetta var hans átjándi leikur í deildinni á tímabilinu.
Hann kom inn af bekknum á 60. mínútu og opnaði markareikninginn aðeins sjö mínútum síðar.
Þetta var annað mark hans fyrir Malmö á tímabilinu, en hann hafði áður skorað gegn Lindö í bikarnum í ágúst.
Malmö situr í sjöunda sæti með 40 stig þegar fjórar umferðir eru eftir af deildinni.
Hjörtur Hermannsson var í byrjunarliði Gautaborgar sem gerði 1-1 jafntefli við Djurgården, en Kolbeinn Þórðarson kom inn af bekknum í síðari hálfleik.
Gautaborg situr í níunda sæti með 38 stig.