28.10.26 - 20:24
Brynjar Ingi Erluson
Evrópubikarinn: Hlín kom við sögu í sterkum sigri Malmö

Hlín kom inn af bekknum þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma

Mynd: Malmö

Hlín Eiríksdóttir kom við sögu hjá Malmö sem vann góðan 2-1 útisigur á hollenska stórliðinu Ajax í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins í kvöld.
Framherjinn byrjaði á bekknum hjá Malmö, en hún hefur verið á mikilli siglingu undanfarið og skorað átta mörk í deild og bikar á tímabilinu.
Malmö komst í tveggja marka forystu, en bandaríska fótboltakonan Isabella D'Aquila kom liðinu yfir strax á annarri mínútu og Tuva Skoog bætti við öðru marki á 57. mínútu.
Ajax minnkaði muninn aðeins fimm mínútum síðar og þegar stundarfjórðungur var eftir kom Hlín inn af bekknum.
Malmö tókst að halda forystunni út leikinn og fer því með eins marks forskot inn í síðari leik liðanna sem fer fram í Malmö eftir tvær vikur.