28.10.26 - 20:03
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Skoraði þrennu gegn Milan á San Siro - Tvö sjálfsmörk tryggðu meisturunum sigur

Mbangula skoraði þrennu á San Síró

Mynd: EPA

Þórir Jóhann byrjaði í tapi gegn meisturunum

Mynd: Venezia FC

Mbangula skoraði þrennu á San Síró

Mynd: EPA
Þremur leikjum var að ljúka í níundu umferð ítölsku Seríu A í kvöld, en það voru skin og skúrir hjá Mílanó-liðunum.
AC Milan tapaði 4-2 fyrir Bologna á San Siro, en Samuel Mbangula fór á kostum fyrir gestina og skoraði þrennu.
Mbangula kom Bologna yfir eftir aðeins átta mínútna leik, en hinn ungi og efnilegi Alphadjo Cisse svaraði fyrir Milan með tveimur mörkum á þrettán mínútna kafla.
Milan fór því með forystu inn í hálfleikinn, en þegar um hálftími var eftir hrundi allt hjá heimamönnum. Davide Bartesaghi varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 60. mínútu og aðeins tveimur mínútum síðar kom Mbangula Bologna aftur yfir.
Mbangula fullkomnaði síðan þrennuna þegar átta mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og innsiglaði glæsilegan sigur Bologna.
Milan situr í fimmta sæti deildarinnar með 18 stig en Bologna er í ellefta sæti með ellefu stig.
Ítalíumeistarar Inter unnu 2-0 sigur á nýliðum Venezia í Feneyjum, en bæði mörk leiksins voru sjálfsmörk heimamanna undir lokin.
Matias Moreno varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á 79. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar skoraði framherjinn Akor Adoms annað sjálfsmark fyrir Venezia.
Þórir Jóhann Helgason var í byrjunarliði Venezia en fór af velli þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka.
Venezia situr á botni deildarinnar með aðeins þrjú stig en Inter trónir á toppnum með 25 stig.
Milan 2 - 4 Bologna
0-1 Samuel Mbangula ('8 )
1-1 Alphadjo Cisse ('14 )
2-1 Alphadjo Cisse ('27 )
2-2 Davide Bartesaghi ('60 , sjálfsmark)
2-3 Samuel Mbangula ('62 )
2-4 Samuel Mbangula ('86 )
Parma 0 - 0 Udinese
0-0 Adrian Bernabe ('69 , Misnotað víti)
Venezia 0 - 2 Inter
0-1 Matias Moreno ('79 , sjálfsmark)
0-2 Akor Adams ('82 , sjálfsmark)