Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 29. nóvember 2021 21:03
Brynjar Ingi Erluson
Ballon d'Or: Sjöundi gullknöttur Lionel Messi
Lionel Messi vann Ballon d'Or í sjöunda sinn
Lionel Messi vann Ballon d'Or í sjöunda sinn
Mynd: EPA
Lionel Messi vann sjöunda gullknött sinn í kvöld á verðlaunahátíð Ballon d'Or í París.

Messi, sem er 34 ára gamall, vann spænska bikarinn með Barcelona á síðustu leiktíð.

Þá vann hann Suður-Ameríkubikarinn með argentínska landsliðinu og hans fyrsti titill með landsliðinu.

Messi var markahæstur með 4 mörk og var valinn besti leikmaður mótsins.

Hann skoraði 38 mörk í 45 leikjum með Barcelona á síðustu leiktíð áður en hann skipti yfir í Paris Saint-Germain í sumar á frjálsri sölu.

Messi vann sjöunda gullknöttinn í kvöld en það er France Football sem stendur fyrir verðlaununum. Enginn hefur unnið verðlaunin oftar en Messi.

Baráttan var á milli Robert Lewandowski og Messi en argentínski snillingurinn hafði betur. Cristiano Ronaldo var í 6. sæti á meðan Mohamed Salah var í 7. sæti. Kylian Mbappe var í 9. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner