Fotbolti.net
29.11.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þuríður Ásta í Grindavík (Staðfest)

Þuríður Ásta í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Njarðvík - Facebook

Hertz

Þuríður Ásta Guðmundsdóttir er gengin til liðs við Grindavík frá Haukum en hún gerir tveggja ára samning við félagið.

Þuríður er aðeins 19 ára gömul en hún spilar aðallega á kanntinum. Hún lék 7 leiki með Haukum í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð en lék einnig sjö leiki með KÁ.

„Ásta hefur æft með okkur undanfarnar þrjá vikur og spilað tvo æfingaleiki. Hún lék sem kantmaður í þeim leikjum og stóð sig mjög vel. Ásta á klárlega eftir að styrkja okkur hóp á komandi tímabili og væntum við mikils af henni,“ segir Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari kvennaliðs Grindavíkur.

„Knattspyrnudeild Grindavíkur býður Þuríði Ástu velkomna til félagsins og hlökkum við til að sjá hana í Grindavíkurtreyjunni á næstu mánuðum." Segir í tilkynningu frá félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.