Fotbolti.net
29.11.25 - 21:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Farke: Man City beygði reglurnar

Farke: Man City beygði reglurnar
Canon

Mynd: EPA

Daniel Farke, stjóri Leeds, sakaði Gianluigi Donnarumma, markvörð Man City, um að þykjast vera meiddur í leik liðanna í dag.

Man City var með tveggja marka forystu í hálfleik en Dominic Calvert-Lewin minnkaði muninn. Leeds sótti hart að Man City og þá lagðist Donnarumma í jörðina svo hægt væri að hlúa að honum. Þá ræddi Guardiola við sína leikmenn.
„Þetta er sniðugt, ef þetta er sanngjarnt og á að vera svona þá segi ég ekkert og læt yfirvöld finna lausn á þessu. Ég spurði fjórða dómarann hvort hann vildi gera eitthvað og hann sagði: 'hendurnar okkar eru bundnar, við getum ekkert gert," sagði Farke.

„Þú getur beygt reglurnar þér í hag og þóst vera meiddur til að taka liðsfund. Ég kann ekki að meta þetta en svona eru reglurnar og ég get ekkert gert í því."

Leeds náði að jafna metin en Phil Foden skoraði sigurmarkið í blálokin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.