29.12.06 - 20:40
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Haestad til Wigan (Staðfest)

Haestad er á leið til Wigan

Mynd: Getty Images

Haestad er á leið til Wigan

Mynd: Getty Images
Wigan hafa fengið til sín norska landsliðsmanninn Kristofer Haestad beint fyrir framan nefið á öðrum félögum í ensku úrvalsdeildinni, þar á meðal Blackburn sem taldir voru líklegastir til að fá hann.
,,Ég veit að það voru önnur félög í Úrvalsdeildinni að reyna að fá hann líka svo að ég er mjög ánægður með að hafa fengið hann til okkar. Hann getur spilað allstaðar á miðjunni, og þar sem hann er 23 ára, er hann á rétta aldrinum til að sanna sig í deildinni," sagði Paul Jewell stjóri Wigan.
Fyrsti leikurinn sem Haestad getur spilað með Wigan er þann 6. janúar í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar gegn Portsmouth.
,,Það er draumur að spila á Englandi og ég er þakklátur Wigan fyrir að taka sénsinn á mér," sagði Haestad.

Heimild: BBC