Fotbolti.net
30.01.06 - 13:14
Magnús Már Einarsson

Latka til Birmingham (Staðfest)

Latka til Birmingham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur tekið varnarmanninn Martin Latka að láni frá Slavia Prag út tímabilið með möguleika á að kaupa þennan 21 árs gamla leikmann næsta sumar.
Latka sem er nokkuð hávaxinn getur leikið sinn fyrsta leik gegn Liverpool á miðvikudag fái hann leikheimild í tæka tíð en Steve Bruce stjóri Birmingham ákvað að krækja í hann vegna meiðsla Kenny Cunningham og Martin Taylor.

Latka er annar leikmaðurinn sem Birmingham fær í mánuðinum en hinn er sóknarmaðurinn Christ Sutton. Bruce ætlaði einnig að krækja í Jason Euell miðjumann Charlton en hann hætti við það til að geta frekar styrkt vörnina sína sem hann hefur nú og gert.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.