Fotbolti.net
30.01.06 - 18:42
Magnús Már Einarsson

Iuliano til Sampdoria (Staðfest)

Iuliano fær rauða spjaldið í leik gegn Real Madrid.

Iuliano fær rauða spjaldið í leik gegn Real Madrid.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski varnarmaðurinn Mark Iuliano hefur gert samning við Sampdoria út tímabilið eftir að hann komst að samkomulagi við spænska liðið Mallorca um að fá samningi sínum rift af persónulegum ástæðum.
Iuliano sem skoraði þrjú mörk í þrettán leikjum í spænsku deildinni á þessari leiktíð mun mæta á æfingu hjá Sampdoria í fyrramálið en þessi fyrrum ítalski landsliðsmaður gerði það gott með Juventus á sínum tíma.

Iuliano kom við sögu í 187 leikjum hjá Juventus á átta ára ferli sínum hjá liðinu. Hann vann til fjölda verðlauna með félaginu áður en hann gekk til liðs við Mallorca fyrir um það bil einu ári síðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.