Fotbolti.net
30.01.06 - 18:51
Magnús Már Einarsson

Dublin til Celtic (Staðfest)

Dublin til Celtic (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Gamli refurinn Dion Dublin hefur gert samning við Glasgow Celit út tímabilið eftir að hafa losað sig undan samning sínum við Leicester City í fyrstu deildinni.
Þessi reynslumikli leikmaður spilaði fyrir Gordon Strachan, núverandi þjálfara Celtic, þegar þeir voru báðir hjá Coventry. Hann hefur einnig spilað fyrir Manchester United og Aston Villa á sínum langa ferli.

,,“Þrátt fyrir að ég sé 36 ára gamall, þá finnst mér ég vera tilbúinn og í mjög góðu formi. Ég hlakka bara til að vera hluti af þessu liði og vonandi get ég hjálpað liðinu að vinna titil á þessu tímabili," sagði Dublin.

Dublin getur spilað bæði í fremstu víglínu og sem miðvörður en Celtic hefur vantað framherja þar sem að Chris Sutton er farinn til Birmingham og Craig Beattie er meiddur.

Þrátt fyrir að vera efstir í skosku deildinni og vera með 8 stiga forskot þá finnst Gordon Strachan þjálfara liðsins þeir vera með vandamál í vörninni og gæti Dublin einnig leyst þá stöðu. Bobo Balde era ð spila á Afríku-mótinu, Du Wei er farinn heim eftir að hafa ekki staðið undir væntingum og Roy Keane meiddist lítillega þegar hann spilaði aftast
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.