Fotbolti.net
30.01.06 - 20:08
Hafliði Breiðfjörð

Davíð Þór Viðarsson til Lokeren (Staðfest)

Davíð Þór fagnar marki með FH í Landsbankadeildinni í sumar.

Davíð Þór fagnar marki með FH í Landsbankadeildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Davíð Þór Viðarsson leikmaður Íslandsmeistara FH hefur verið lánaður til belgíska félagsins Lokeren þar sem hann mun leysa stöðu bróður síns, Arnars Þórs, sem hætti með Lokeren á dögunum og gekk í raðir Twente í Hollandi.
Davíð verður til að byrja með í þrjá og hálfan mánuð hjá Lokeren og svo hefur belgíska félagið 1,5 - 2 mánuði til að taka ákvörðun um hvort þeir kaupi hann en af öðrum kosti mun hann spila með FH í sumar.

,,Ég ætla að reyna að standa mig eins vel og ég get og vonandi hefur það í för mér sér að þeir hafi áhuga á að halda mér en ef ekki þá kem ég og spila með FH í sumar í deildinni og Evrópukeppninni," sagði Davíð Þór í samtali við Fótbolta.net í kvöld.

Davíð Þór var hjá Lilleström í Noregi frá árinu 2002 en var lánaður aftur til FH sumarið 2004. Þar sem norska félagið klúðraði að ganga frá félagaskiptum hans til baka var hann áfram hjá FH fram á mitt sumar er FH keypti hann til baka frá norska félaginu. Hann ætlaði sér þrátt fyrir það að komast aftur í atvinnumennsku.

,Ég hef alltaf stefnt að því að fara aftur út en ég var eiginlega búinn að gefa það upp á bátinn í bili. En svo kom þetta upp og var nokkuð spennandi og mér líst mjög vel á þetta."

Davíð Þór mun líklega leysa stöðu bróður síns hjá Lokeren en Arnar Þór Viðarsson bróðir hans hafði verið hjá Lokeren í sjö ár og var þar af fyrirliði í þrjú ár áður en hann gekk til liðs við Twente fyrr í janúar.

,,Það hafa allir sem ég er búinn að tala við búnir að fatta að ég er bróðir Arnars en við vonum bara að ég verði betri en hann, eða allavega eins góður.

Lokeren á leik gegn Roeselare á laugardaginn kemur en Lokeren er í áttunda sæti belgísku deildarinnar en Roselare í því ellefta.

,,Ég held ég sé örugglega löglegur fyrir leikinn á laugardaginn. Ég býst við að vera í hóp en ég veit það aldrei. Hann er allavega búinn að tala um það að hann ætlaðiu að setja mig í hópinn um leið svo ég vona það bara."

Hjá Lokeren hittir Davíð Þór fyrir tvo aðra íslenska leikmenn. Þá Rúnar Kristinsson sem hefur tekið við fyrirliðabandinu og Arnar Grétarsson sem eins og Rúnar hefur verið hjá Lokeren undanfarin fimm ár.

,,Þeir eru búnir að vera mjög hjálplegir. Það er mjög gott að hafa þá tvo hérna," sagði Davíð Þór um íslensku félaga sína tvo en hann segist ekki eiga í tungumálaörðuleikum í Belgíu.

,,Ég er samt bara nokkuð sleipur í tungumálinu. Ég get babblað mig svolítið áfram og skil nokkuð mikið. Ég er búinn að koma hérna svo rosalega oft á meðan Arnar var hérna og búinn að lesa mikið af fréttum á þessu tungumáli og þetta er líkt þýskunni sem ég lærði. Vonandi get ég farið að tjá mig meira og meira."

Að lokum spurðum við Davíð hver munurinn er á norska fótboltanum þar sem hann var áður og þeim belgíska.

,,Þetta er allt öðruvísi fótbolti sem er spilaður í belgíu, byggist meira upp á tækni á meðan í noregi snýst þetta meira um kraft og tempó. Það er munurinn en ég held að það sé ekki hægt að bera þessar deildir mikið saman en það er mín skoðun, þar sem ég er að spila í Belgíu núna, að þessi belgíski sé betri. En ég held þetta séu mjög svipaðar deildir."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.