Fotbolti.net
30.01.06 - 22:20
Hafliði Breiðfjörð

Alexander Östlund til Southampton (Staðfest)

Östlund ræðir við Kára Árnason í landsleik Íslendinga og Svía í Svíþjóð í haust.

Östlund ræðir við Kára Árnason í landsleik Íslendinga og Svía í Svíþjóð í haust.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Sænski landsliðsmaðurinn Alexander Östlund gekk í dag í raðir Southampton frá hollenska félaginu Feyenoord og gerði tveggja og hálfs árs samning við enska Championship félagið.
Frá þessu er greint á vefsíðu Southampton en ekkert kemur þar fram um kaupverð. Östlund er 27 ára gamall og hefur verið fastur í hægri bakvarðarstöðu sænska landslðsins síðan á EM 2004 í Portúgal. Hann á að baki 21 landsleik.

Hann gekk í raðir Feyenoord í janúar í fyrra frá sænska félaginu Hammarby sem Pétur Hafliði Marteinsson leikur með. Southampton hafa einnig fengið framherjann Peter Madsen á láni frá þýska félagin Köln út leiktíðina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.