Fotbolti.net
30.01.07 - 12:54
Magnús Már Einarsson

Alexandre Song til Charlton á láni frá Arsenal (Staðfest)

Alexandre Song til Charlton á láni frá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Charlton hefur fengið liðsstyrk fyrir fallbaráttuna í ensku úrvalsdeildinni en liðið hefur fengið miðjumanninn Alexandre Song að láni frá Arsenal út leiktíðina.
Song sem kom til Arsenal frá Bastia síðastliðið sumar hefur leikið sex leiki á leiktíðinni, en helmingur þeirra hefur verið í enska deildabikarnum. Sochaux í Frakklandi var einnig talið hafa áhuga á Song en hann ákvað að ganga til liðs við Charlton.

Song sem er 19 ára gamall Kamerúni gæti dottið beint inn í leikmannahóp Charlton sem mætir Bolton í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld sem og varnarmaðurinn Madjid Bougherra sem kom til liðsins frá Sheffield Wednesday á sunnudaginn.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.