Fotbolti.net
30.01.08 - 14:01
Magnús Már Einarsson

Alan Hutton til Tottenham (Staðfest)

Alan Hutton til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur gengið frá kaupunum á hægri bakverðinum Alan Hutton en hann kemur til liðsins frá Glasgow Rangers og er verðmiðinn talinn vera um það bil níu milljónir punda.
Félögin komust að samkomulagi um kaupverð í byrjun mánaðarins en hinn 23 ára gamli Hutton hafnaði hins vegar tvívegis samningstilboði frá Tottenham.

Nú hefur Tottenham hins vegar gengið frá kaupunum og er Hutton annar varnarmaðurinn sem kemur til liðsins í vikunni en í fyrradag kom Jonathan Woodgate frá Middlesbrough.

,,Við erum ánægðir með að geta tilkynnt að við höfum náð samkomulagi við Glasgow Rangers um félagaskipti Alan Hutton," segir í yfirlýsingu á heimasíðu Tottenham.

Hutton var einnig orðaður við Manchester United en nú er möguleiki að fyrsti leikur hans fyrir Tottenham verði gegn ensku meisturunum á Old Trafford næstkomandi laugardag.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.