30.01.08 - 16:06
Magnús Már Einarsson
Arsenal fær hinn efnilega Freeman (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur fengið framherjann Luke Freeman frá Gillingham en þessi efnilegi leikmaður verður sextán ára í mars.
Freeman varð yngsti leikmaðurinn til að spila í enska bikarnum í nóvember síðastliðinn en hann hefur vakið athygli margra liða og auk Arsenal voru West Ham og Newcastle orðuð við hann.
Arsenal náði hins vegar samkomulagi um að borga Gillingham 200 þúsund pund fyrir Freeman sem hefur gert tveggja ára samning við skytturnar og mun fara í unglingalið félagsins.
,,Það er synd fyrir Gillingham að missa mann með svona sérstaka hæfileika eins og Luke en við getum ekki staðið í vegi fyrir svona frábæru tækifæri," sagði Paul Scally formaður Gillingham.

Heimild: BBC