Fotbolti.net
30.01.08 - 22:05
Hafliði Breiðfjörð

Valur fær markvörð U17 ára landsliðsins frá Leikni (Staðfest)

Valur fær markvörð U17 ára landsliðsins frá Leikni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Valsmenn hafa fengið góðan liðsstyrk til framtíðar í því að markvörðurinn efnilegi Ásgeir Þór Magnússon hefur gengið til liðs við þá frá Leikni Reykjavík en þetta var staðfest á vefsíðu Leiknis.
Ásgeir sem er 17 ára gamall hefur verið að leika með U17 ára landsliði Íslands. Hann hafði leikið í marki Leiknis á undirbúningstímabilinu en hefur nú ákveðið að fara til Vals.

Ásgeir lék einn leik með Leikni í VISA-bikarnum í fyrra en það var leikur gegn Haukum í fjórðu umferð bikarsins en Ásgeir var aðalmarkvörður í þeim leik.

Valsmenn eru því orðnir vel byrgir í markmannsmálum því aðalmarkvörður þeirra er Kjartan Sturluson sem fór með Íslenska landsliðinu til Möltu í dag og auk hans eru þeir Kristinn Geir Guðmundsson og Sigurður Bjarni Sigurðsson.

Heimild: Vefsíða Leiknis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.