Rashford gæti farið frá Man Utd í janúar - Davies hefur áhuga á að fara til Liverpool - Fer Kobel til Chelsea?
   mið 30. janúar 2019 17:31
Elvar Geir Magnússon
Álasund búið að bjóða í Davíð Kristján - Blikar vilja betra tilboð
Davíð Kristján Ólafsson á æfingu í Katar.
Davíð Kristján Ólafsson á æfingu í Katar.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Norska B-deildarliðið Álasund hefur gert tilboð í Davíð Kristján Ólafsson, vinstri bakvörð Breiðabliks.

„Álasund hefur komið með tilboð en það er ekki í samræmi við getu leikmannsins. Davíð er að okkar mati besti vinstri bakvörður deildarinnar og því þarf alvöru tilboð ef eitthvað á að gerast," segir Sigurður Hlíðar Rúnarsson verkefnisstjóri í knattspyrnudeild Breiðabliks.

Hinn 23 ára gamli Davíð spilaði sinn fyrsta landsleik fyrr í þessum mánuði en hann stóð sig vel í markalausu jafntefli gegn Eistum.

Davíð er uppalinn hjá Breiðabliki og hefur samtals skorað þrjú mörk í 93 deildar og bikarleikjum með liðinu.

„Davíð er leikmaður sem við höfum fylgst með síðan árið 2017. Það passar vel fyrir hann og Álasund að hann komi hingað í nokkra daga til að við náum að kynnast betur," sagði Bjørn Erik Melland yfirmaður íþróttamála hjá Álasund á heimasíðu félagsins núlega.

Álasund tapaði í umspili um sæti í norsku úrvalsdeildinni í haust en liðið komst ekki upp úr B-deildinni eftir að hafa verið í góðri stöðu lengi vel á tímabilinu.

Aron Elís Þrándarson, Daníel Leó Grétarsson og Hólmbert Aron Friðjónsson eru allir á mála hjá Álasund en Adam Örn Arnarson yfirgaf félagið nýlega.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner