Fotbolti.net
30.03.05 - 07:18
Magnús Már Einarsson

Berkovic til Maccabi (Staðfest)

Berkovic prúðbúinn.

Berkovic prúðbúinn.

Canon
Miðjumaðurinn Eyal Berkovic frá Ísrael hefur gert eins árs samning við Maccabi Tel Aviv í heimalandinu. Berkovic sem hefur leikið á Englandi undanfarin 9 ár fékk sig lausan frá Portsmouth fyrr á árinu og nú hefur hann ákveðið að fara til Maccabi.
Athyglisvert er að Berkovic sannfærði stjórnarmenn Maccabi um að bjóða 1000 börnum úr fátæktrarhverfum á hvern einasta heimaleik liðsins og er þetta frábærlega gert hjá hinum 33 ára gamla Berkovic en hann lagði áherslu á að liðið samþykkti þetta.

Berkovic segist ætla að æfa vel og stefnir hann að því að koma Maccabi Tel Aviv aftur á toppinn í Ísrael en liðið hefur ekki náð sér á striki að undanförnu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.