Á Twitter hefur reikningurinn 'Icelandic Football UK' eða íslenskur fótbolti á Bretlandi, haldið úti keppni þar sem keppt er um hvaða lið á Íslandi er með fallegasta merkið.
Fyrirkomulagið var á þann háttinn að tvö merki kepptu sín á milli og það merki sem fékk fleiri atkvæði fór áfram í næstu umferð.
Í úrslitum mættust Einherji á Vopnafirði og Knattspyrnufélag Akureyrar, KA.
Einherji hafði nauman sigur eins og má sjá í færslunni hér að neðan. Til hamingju Einherji.

— Icelandic Football UK (@marcboal) March 30, 2020
Athugasemdir