Jón Þór verður með Vestra í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það vakti athygli í gær þegar nafn Jóns Þórs Haukssonar var á skýrslu Vestra þegar Vestramenn heimsóttu Víkinga í Meistarakeppni KSÍ. Jón Þór stýrði Vestra í lokaleikjum síðasta tímabils og í kjölfarið tók Daniel Badu við sem aðalþjálfari liðsins.
En Jón Þór verður áfram hluti af þjálfarateymi bikarmeistaranna. Þetta staðfestir Samúel Samúelsson, sem er meðstjórnandi í stjórn Vestra, í samtali við Fótbolta.net.
En Jón Þór verður áfram hluti af þjálfarateymi bikarmeistaranna. Þetta staðfestir Samúel Samúelsson, sem er meðstjórnandi í stjórn Vestra, í samtali við Fótbolta.net.

TENGT EFNI
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Það er engin breyting á því að Daniel Badu er aðalþjálfari liðsins en Jón Þór verður hluti af teyminu. Þeir báðir, Badu og Jón Þór, voru skráðir sem aðalþjálfarar Vestra í gær.
Vestri, sem féll úr Bestu deildinni síðasta haust, er á leið í Evrópukeppni í sumar, spilar a.m.k. fjóra Evrópuleki og þarf þjálfari liðsins að vera með UEFA Pro gráðuna. Jón Þór er með þá gráðu en Badu er ekki með hana.

Daniel Badu er aðalþjálfari Vestra.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir