30.04.07 - 10:18
Hafliði Breiðfjörð
Sammy Lee tekur við Bolton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sammy Lee hefur verið staðfestur sem nýr knattspyrnustjóri Bolton Wanderers en þetta var gert á fréttamannafundi félagsins nú rétt í þessu. Lee sem er 48 ára tekur við starfinu af Sam Allardyce sem hætti óvænt í gær.
,,Ég er ánægður með það verkefni að verða stjóri Bolton," sagði Lee á fréttamannafundinum. ,,Það er frábær arflegð sem Sam skilur eftir sig og það er mitt starf að halda því áfram."
Lee sem varð þjálfari hjá Bolton í júní 2005 hafði áður starfað sem þjálfari hjá Liverpool og enska landsliðinu. Hann verður nú knattspyrnustjóri í fyrsta sinn.
,,Það tók mig eina sekúndu að ákveða að taka starfinu eftir að mér var boðið það. Éger mjög stoltur af því að vera settur hér fyrir framan alla sem nýr stjóri Bolton Wanderers."

Heimild: BBC