Fotbolti.net
30.05.07 - 15:22
Magnús Már Einarsson

Portsmouth kaupir Sulley Muntari (Staðfest)

Portsmouth kaupir Sulley Muntari (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninnum Sulley Muntari frá Udinese en félagið greiðir metfé fyrir hann eða sjö milljónir punda.
Muntari sem er 22 ára er frá Ghana en hann hefur gert fimm ára samning við Portsmouth.

,,Við reyndum að fá hann í síðustu tveimur félagaskiptagluggum en Udinese vildu ekki selja svo við erum ánægðir. Hann er með frábæran vinstri fót og er orkumikill, getur hlaupið allan daginn og hann er með góðar sendingar," sagði Harry Redknapp said stjóri Portsmouth.

Muntari er þriðji leikmaðurinn sem Portsmouth fær síðan að tímabilinu lauk á Englandi en Hermann Hreiðarsson og Sylvain Distin hafa einnig gengið til liðs við félagið.

Redknapp er ekki hættur og hann segist hafa áhuga á Alou Diarra miðjumanni Lyon og John Utaka framherja Rennes. Diarra sem er 25 ára er talinn kosta 4,5 milljónir punda en verðmiðinn á hinum 24 ára gamla Utaka er 5,6 milljónir punda.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.