Fotbolti.net
30.05.07 - 15:02
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Crespo verður áfram á láni hjá Inter (Staðfest)

Crespo verður áfram á láni hjá Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Argentínski framherjinn Hernan Crespo verður áfram hjá Inter á láni frá Chelsea á næstu leiktíð. Þessi 31 árs gamli leikmaður var á láni hjá Inter á nýliðinni leiktíð og hjálpaði liðinu að vinna yfirburðarsigur í Serie A.
,, Ég er mjög ánægður. Að vera áfram hjá Inter er það sem ég vildi," sagði Crespo við heimasíðu Inter en hann skoraði fjórtán mörk á nýliðinni leiktíð.

,,Ég vil þakka Chesea fyrst af öllu fyrir þeirra hjálp og Inter fyrir að staðfesta trú sína á mér," bætti Crespo við á heimasíðu Inter.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.