30.05.07 - 15:44
Magnús Már Einarsson
Ellert Hreinsson og Þór Steinar í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Ellert Hreinsson í leik með Blikum gegn Keflavík í Landsbankadeildinni á dögunum. Hann er núna farinn í Víking Ólafsvík á láni.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Víkingur Ólafsvík úr fyrstu deild hefur fengið Ellert Hreinsson og Þór Steinar Ólafs frá Breiðablik og hefur liðið því fengið fjóra leikmenn í dag. Ellert kemur á láni til haustsins en Blikar geta kallað hann til baka.
Bæði Ellert og Þór Steinar léku með Víkingi á láni á síðustu leiktíð. Ellert sem er tvítugur sóknarmaður skoraði fjögur mörk í tíu leikjum með Víkingi í fyrstu deildinni í fyrra.
Hann lék síðari hluta tímabilsins í fyrra með Blikum og spilaði hann sex leiki þar. Þá hefur hann leikið þrjá leiki í Landsbankadeildinni með Blikum það sem af er þessari leiktíð.
Þór Steinar sem er á 22.aldursári er varnarmaður. Hann lék sextán leiki með Víkingi Ólafsvík í fyrstu deildinni í fyrra og en hann hefur ekki komið við sögu hjá Blikum á leiktíðinni.
Fyrr í dag fengu Víkingar, Hermann Geir Þórsson að láni frá HK og Aljaz Horvat frá Slóveníu. Þeir sem og Þór Steinar hafa allir fengið leikheimild og eru þeir því löglegir með Víkingi gegn Grindavík í fyrstu deildinni annað kvöld en Ellert ætti einnig að fá leikheimild fyrir þann tíma.