30.05.08 - 12:34
Magnús Már Einarsson
Sampdoria gengur frá kaupum á Cassano (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Samdporia hefur keypt ítalska framherjann Antonio Cassano frá Real Madrid en hann var í láni hjá ítalska félaginu í vetur.
Ekki hefur verið greint frá því hvað Samdporia greiddi fyrir Cassano en einhverjir spænskir fjölmiðlar halda fram að hann hafi farið frítt til ítalska félagsins.
Cassano kom til Real Madrid frá Roma á 5,5 milljónir evra í janúar 2006. Hann náði hins vegar aldrei að festa sig í sessi hjá Real Madrid og lenti nokkrum sinnum upp á kant við Fabio Capello í fyrra.
Í ágúst síðastliðnum fékk Sampdoria á láni og hann lék frábærlega í Serie A í vetur. Hann komst einnig í fréttirnar þegar hann fékk fimm leikja bann fyrir að ráðast að dómara og henda treyju sinni í hann.
Cassano var í síðustu viku valinn í landsliðshóp Ítala fyrir EM en það val kom nokkuð á óvart.

Heimild: Reuters