Fotbolti.net
30.05.08 - 14:22
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Amauri til Juventus (Staðfest)

Amauri til Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Juventus hefur keypt brasilíska framherjann Amauri frá Palermo. Ítalski miðjumaðurinn Antonio Nocerino hefur hins vegar farið í hina áttina, yfirgefið Juve og gengið til liðs við Palermo.
,,Amauri tilheyrir Juventus. Í dag gerði brasilíski framherjinn fjögurra ára samning," sagði á heimasíðu Juventus.

Amauri, sem er að fá ítalskt vegabréf, skoraði 15 mörk á síðustu leiktíð og mörg félög hafa verið á eftir honum, þar á meðal AC Milan.

Juventus hefur hins vegar alltaf verið í bílstjórasætinu í baráttunni um þennan 27 ára gamla leikmann og nú hefur félagið náð samkomulagi um að kaupa hann frá Palermo á 22,8 milljónir evra. Palermo mun hins vegar borga 7,5 milljónir evra til að fá Nocerino frá Juve.

Amauri mun berjast við Alessandro Del Piero, David Trezeguet og Vincenzo Iaquinta um sæti í ramlínu Juventus en liðið mun að nýju taka þátt í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.